77 árgangur Ólafsfjarðar

1977......LANGFLOTTUST!!!!

30.03.2007 17:10:22 / Gullý

Myndirnar frá Óla Pálma

Jæja þá eru myndirnar komnar á netið, hrikalega gaman að skoða þær þó að maður sé einsog blindfullur hálfviti á þeim flestum en maður á það til að myndast svona þegar maður drekkur sig blindfullan og lætur einsog hálfviti, hehe. Við erum nú samt ótrúlega flott á myndunum miðað við ástandið, kannski þetta sé sérstök linsa sem er á vélinni hans Óla en ég hvet ykkur öll til að skoða þær en hér er síðan hans: http://www.flickr.com/photos/olipalmi

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 18:02:37 / Gullý

Halló halló fólk

Hvað segir liðið????

Biluð leti í gangi í öllum eða hvað!!!!!!!!!!!

Það var hittingur í gærkveldi hjá Jóhönnu Maríu, urðum að hittast á meðan hún var tuttuguogeitthvað :) Hún á auðvitað afmæli á föstudaginn og bætist í hóp hinna höfðingjanna sem eru búin að ná 30 árunum en munu vera Sigrún, Ragga, Andrea og Gummi (ég er ekki að gleyma neinum er það?). Það var svaka stuð á okkur einsog alltaf, extra mikið um að vera enda MIKIL frjósemi í gangi hjá okkur Sunnandömum ;)  Þið þarna fyrir norðan eruð ekkert að standa ykkur í þessu, össöss :lol: Ég tók myndavélina með mér en þar sem ég þjáist af óléttuþoku þá gleymdi ég að taka myndir, djöfuls lúxus að geta kennt þessari óléttu um allt :klikk:

Well, þarf að þjóta, læt heyra í mér betur seinna og það má alveg einhver annar skrifa hér líka, hmmmmm. Heyrumst, Gullý.


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 07:03:48 / olipalmi

Myndir



Nú lofa ég, ég er tilbúinn með myndirnar en vantar aðgang inn á flickr síðuna til að henda þeim inn.
Er einhver hérna sem veit/man username/password?

kv
Óli Pálmi

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 21:24:22 / olo77

Þetta fer að styttast!

Eins og þið gerið ykkur væntanlega öll grein fyrir (með mismikilli gleði þó) erum við að verða þrítug á næsta ári.
Hvernig væri að taka frá eina helgi næsta sumar (ekki er ráð nema í tíma sé tekið) og hafa smá djamm/fjölskylduhitting í tilefni þess?

Ég held að kjörið væri að hittast eins og einu sinni, leigja okkur jafnvel skemmtistað hér í borginni (Já, REYKJAVÍK) og djamma af okkur rassgatið!

Flestir eiga í einhver hús að vernda með börn sín hér í borg og ef ekki þá skjótum við hin nú örugglega skjólshúsi yfir vandalausa.

Mér datt í hug að við myndum kannski hittast á laugardegi, fara saman í Adrenalíngarðinn (með eða án maka), grilla um kvöldið í Heiðmörk (með mökum og jafnvel börnum) og leigja svo stórann stað (líkt og Hressó) undir smá skemmtun um kvöldið.
Sunnudagurinn gæti svo farið í hopp og hí í fjölskyldu- og húsdýragarðinum með gríslingana.

Þar sem við erum mörg ætti þetta ekki að kosta okkur mjög mikið. Ég veit að það kostar eitthvað um 50.000 að leigja Hressó heilt kvöld, en þá er líka bjór (og það mikið af honum) innifalið.

Látið endilega vita hvernig ykkur líst á þetta!

Andrea.

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 15:43:29 / Gullý

Hittingur í fyrrakvöld.

Við sunnanstelpur vorum með hitting hjá Jónu Ellen á miðvikudagskvöldið, mættum allar nema Díana en hún var víst í göngu í Grafarholti og við náðum ekki á henni, vorum að spá í reykmerki eða bréfdúfu en það gekk ekki upp :) Einsog alltaf var svaka stuð á okkur, það er alltaf mikið hlegið þegar við hittumst en sveimérþá það var smá extra í gangi þarna enda ansi fyndnar sögur sem voru sagðar þarna, maskarinn minn var kominn niðrá hné því ég grenjaði svo úr hlátri. Ég gleymdi því miður myndavélinni minni en Jóna og Elísabet smelltu af nokkrum myndum, þær kannski skella þeim hérna inn við tækifæri.

Ef einhver af ykkur norðanfólkinu á leið suður þá er um að gera að hafa samband við okkur ef ykkur langar að hittast, það er alltaf hægt að hnoða saman í hitting fyrir ykkur :)

Vona að allir hafi það gott, Gullý.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 16:10:49 / Gullý

Hellú evríboddí :)

Einsog þið vitið öll þá höfum við Sunnanstelpurnar reglulega Hittinga, ákváðum að taka einn fylleríshitting um daginn (þarsíðustu helgi) að ósk Jóhönnu Maríu og skemmtum við okkur dúndurvel.

Ég (Gullý), Andrea, Jóna, Jóhanna og Heiða mættum og byrjuðum kvöldið heima hjá Heiðu og Lúlla, ja nema hún Andrea en hún byrjaði annarsstaðar og mun fyrr en við hinar :haha:  Jóna greyið var á bakvakt þannig að hún varð að sætta sig við að horfa á þegar við hinar skelltum í okkur "guðaveigum" en ég held að hún hafi nú bara verið mjög sátt við það þegar leið á kvöldið og áhrif veiganna "kikkuðu inn" á okkur hinar:lol:  Það var tekin umferð í Singstar og mikið kjaftað áður en við skelltum okkur í bæinn þar sem var dansað frammá rauða nótt.

Ég var með myndavélina en tók alltof fáar myndir, bara rétt skellti af nokkrum heima hjá Heiðu en skyldi svo vélina þar eftir.

Hérna eru þessar fáu myndir sem ég tók: http://www.gully.blog.is/album/Fyllerishittingur/

Tók líka einhver vídeó af Andreu og Lúlla þar sem þau voru að syngja en það blossar alltaf upp mikil keppni þegar þau tvö og Singstar koma saman :) en því miður kann ég ekki að setja þau inn, þið fáið að sjá þau um leið og ég finn útúr þessu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 22:42:54 / olipalmi

Myndir

Sælt veri fólkið
Eftir talsverða umhugsun þá hef ég ákveðið að ég muni ekki setja eina einustu mynd sem var tekin á vélina mína þetta kvöld á netið. Engin mynd er hæf til birtingar börnum innan 21 árs og það er aldrei að vita nema að slíkir einstaklingar venji komur sínar hingað inn.
Af hverju er ekkert af þessu hæft til birtingar?
1. Jóna í húlla, berbrjósta, með banana milli bjróstanna, borðandi vatnsmelónu(+21)
2. Jóhanna nakin með avacado á höfðinu syngjandi færeyska þjóðsönginn (+21)
3. Baldur borðandi banana (sjá nr1)
4. Gullý nakin borðandi banana (sjá nr1)
5. Sæunn nakin borðandi banana (sjá nr1)
6. Sigrún nakin borðandi banana (sjá nr1)
7. Abbi nakinn borðandi banana (sjá nr1)
8. Óli Pálmi nakinn (í pottinum, að éta vatnsmelónu)
9. Gummi nakinn með banana milli rasskinnana og vatnsmelónu á höfðinu (og hann var ekki einu sinni á svæðinu)

Þannig að þið sjáið að ég get ekki birt þessar myndir á netinu
Þær munu hins vegar koma fram í blaði félags S&M dýrkenda, tbl. 143 árg. 3.

kv
Óli Pálmi

p.s.
Ég er bara að kaupa mér lengri frest til að koma myndunum á netið, það er 'ekki svo mikið' sem er ósiðlegt þarna (bara myndir af Jónu, Gullý, Jóhönnu, Röggu, Gullý, Írisi, Röggu, Gullý, Sigrúnu, Gullý, Jóhönnu, Sæunni, Írisi, Sigrúnu, Gullý, Gullý, Gullý, Jóhönnu, etc. (you catch my drift?))

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 22:13:00 / olo77

Ó crap

Æi, einhvern tíman var ég víst að rífa kjaft yfir hvað þessi síða er ómöguleg (sem mér finnst ennþá) en ég held að best væri samt að við notuðum hana áfram þar sem við erum komin vel á veg með hana.
Ég er bara orðin svo gömul að ég gleymi oft að skoða hana :lol:

Myndirnar frá hittingnum eru snilld og mér finnst eins og það hafi ekki verið teknar jafn margar myndir af ykkar einlægri í mörg ár! :P
En það er sko bara gaman og eins og þið sjáið var geggjað stuð á okkur tjellingunum!

Sendi Óla Pálma dónalegt (as in ókurteist, ekki hin gerðin perrinn þinn) sms til að heimta einhverjar myndir frá bekkjarmótinu! Hann hefur ekki svarað ennþá, pungurinn sá.

En jæja. Vonandi man ég oftar eftir síðunni framvegis.

Stubbaknús,
Andrea.

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 20:01:59 / Gullý

Fleiri myndir frá Hittingnum í gær :)

Elísabet er svo dugleg að vera búin að gera bloggsíðu og er búin að setja þar inn myndir frá Hittingnum í gær. Set báðar slóðirnar hérna. 

Myndir frá Elísubet : http://www.beth.blog.is/album/HittingurhjaGully/

Myndir frá Gullý     : http://www.gully.blog.is/album/Hittinguriagust/


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 02:19:46 / Gullý

Halló halló :)

Við stelpurnar hér fyrir sunnan vorum með hitting í kvöld, hrikalega gaman hjá okkur einsog venjulega enda alveg einstaklega skemmtilegt fólk í þessum árgangi :)

Ég tók myndir og er búin að setja þær hér inn: http://gully.blog.is/album/Hittinguriagust/ 

Við ákváðum að hafa fylleríshitting í september þannig að ef einhver af ykkur á leið suður í september þá endilega látið vita, við erum ekki búin að negla neina dagsetningu en þetta verður pottþétt skemmtun :)

P.S. ÓLI PÁLMI ef þú varst ekki búinn að fatta það þá var SMSið sem þú fékkst frá okkur :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 21:07:29 / olipalmi

Myndirnar fara að kom

Sæl verið þið Nú fer ég alveg að komast í sumarfrí og fer þá í að koma inn einhverju af þessum myndum sem voru teknar á vélina mína :o) Mér sýnist að ég þurfi svo sem ekki að ritskoða mikið af því sem var tekið á hana.... En, það kemur allt í ljós þegar þær fara að tínast inn á síðuna. til ðenn... /Óli Pálmi

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 16:48:23 / olo77

Myndir af bekkjarmóti júní 2006

 Kæri Óli Pálmi bekkjarvinur vors og blóma !
Nú er ég orðin ansi þreytt á því að kíkja inná síðuna og sjá engar myndir frá þér, er að treysta svolítið á þig........ Þú kannski setur myndirnar á disk og sendir mér þegar ég flyt heim til Íslands. Og ég að sjálfsögðu mun borga þér fyrir þær.......... Hvernig væri það? Mig langar svo agalega til að eiga þetta, plís gerðu það????.  Mín myndavél klikkaði nefnilega algjörlega. Adressan verður: Breiðvangur 10, 220 Hafnó - má senda eftir 1. ágúst OK .... nettur !
Kæru allir bekkjarfélagar,
Annars er ekki allt gott að frétta af hinu bekkjarliðinu.  Eftir 10 daga nákvæmlega er ég að fara á Robbie Williams tónleika í Parken og er alveg að fíla það.  Síðan eftir 12 daga verður tekið á því í ratleiknum Amazing Race by Long and Lú hér í Köben.  Já það er nóg að gera hjá mér að taka þátt í svona furðulegum atburðum þetta árið.  Síðan um AR-kvöldið verður massíft fest í Köben og danskur matur til borðs.  Það er sem sagt verið að nýta síðustu dagana í Baunalandinu ;)
En talandi um veður jísús skvísús það er náttúrulega eintóm sæla hérna megin. Jeg har nemlig været på stranden og det hele.  Det er helt fantastiskt :lol:
Bið að heilsa á frónið góða og nú vil ég heyra fréttir af ykkur,
Kærlig hilsen,
Jóna


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 00:30:04 / olo77

Eruð þið hætt með þessa síðu?

Ef þið eruð hætt með þessa bloggsíðu, látið mig þá endilega vita ef þið eruð kominn með nýja bloggsíðu, svo ég geti fylgst með hvað er í gangi á fróni. Annars hef ég það mjög gott hér í Danmörku, er að fara að gifta mig í næsta mánuði, fimmtudaginn, 13. júlí. 

Þó ég sé nú ekki trúaður maður, fer vígslan fram í kirkju hér í Århus og flytjum við okkur svo yfir í tívolíið þar sem veislan er haldin. Þetta verður haldið að morgni og byrjar veislan hádegisleitið. Þar munum við byrja á því að borða, þar sem verður boðið upp á glæsilegt morgun- og hádegisverðarhlaðborð og þjónar allt í kringum mann, svo maður þarf ekki sjá um neitt. Þar á eftir mun ég og mín hljómsveit spila 3 lög, samin af Arnþóri(hann er bróðir minn ef þið ekki munið það). Og svo verður jamsession eftir það, því það eru ansi margir tónlistarmenn í báðum fjölskyldum. Það verður með öllum líkindum jazz-funk jam eins og við úr Vampiros erum vanir. Eftir að spileríinu er lokið, verður eflaust hlustað á einhverja tónlist, dansað og bara spjallað saman, fólk að kynnast og svona. Þar á eftir munum Mira hverfa á braut, þar sem við munum eyða nóttinni á Hótel Ritz í Århus:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 18:42:06 / Gullý

Snilldar bekkjarmót :)

Það er alveg óhætt að segja að árgangur 77 hafi málað bæinn rauðann í sæta firðinum okkar. Já góður matur, góður félagsskapur, kalt Ólafsfjarðarvatn hehe, stærsti smokkur í heimi uppblásinn, Baldur mjög svekktur hehe, brjósahaldarar rifnir. Ég meina bara þetta getur ekki klikkað með góðu fólki á besta staðnum í heiminum. Ólafsfirðinum okkar !
Hlakka til að sjá ykkur aftur í góðum gír þegar ég flyt heim í sumar.
Ég vil eindregið skora á Óla Pálma og Andreu til að setja fleiri myndir inn af því ég veit að þið tókuð svo margar myndir. Ég tók nokkrar en batteríið var svo leiðinlegt orðið um kvöldið að myndirnar eru frekar blurrí þið vitið.
Gaman að sjá hvað Ólafsfirðingar eru annars skemmtilega forvitnir af því að það voru svo margir aðrir aldurshópar í partýinu. Það er svona þegar líf og fjör kemur í bæinn þá hópast allir í kringum þá. Sem er náttúrulega bara gaman og eðlilegt.
Ég legg til að þetta verði gert aftur svona....
Kær kveðja til ykkar allra,
Jóna grillari og meistari í "vatnadýfingum" ;0)

Ég bara varð að setja þetta hérna inn svo allir sæju pistilinn frá henni Jónu Ellen vatnadýfingarmeistara :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 16:30:57 / Gullý

Ný síða í smíðum :)

Jæja, þá er bekkjarmótið afstaðið og ég held að ég geti fullyrt að þeir sem komu hafi skemmt sér mjög vel enda heppnaðist þetta frábærlega. Einsog oft áður þegar þessi bekkur kemur saman þá var drykkju haldið í lágmarki og safnast saman við gítarspil að syngja Kúmbæja og fleiri vel valda skátasöngva, EINMITT.

Eftirminnilegustu atvikin hjá mér eru auðvitað í leiknum fræga þegar Baldur og Jóna Ellen slitu brjóstahaldarann minn í tvennt og rifu bolinn minn, mamma ætlar að laga bolinn en brjóstahaldarinn var of langt leiddur til að hægt væri að bjarga honum en það skiptir ekki máli því maður fórnar sér sko fyrir liðið enda unnu STELPURNAR leikinn :D. Svo auðvitað þegar hún Íris Dröfn grýtti mér útí vatnið, já það var ýmislegt sem gekk á þarna :lol:  Þetta var sko allt þess virði þrátt fyrir eymsli og marbletti útum allt því þessar minningar fylgja manni að eilífu, já og svo eru auðvitað til myndir af þessu öllu saman þannig að maður fær ekki að gleyma þessu ;)

 Hér er t.d. ein mynd af mér og Írisi eftir baðið í vatninu

Andrea er búin að stofna myndasíðu fyrir okkur http://flickr.com/photos/argangur77  þar sem við ætlum að dæla inn öllum myndunum, ég veit að hann Óli Pálmi á heilan helling af myndum og verður ansi fróðlegt að sjá þær, held að það þurfi að ritskoða þær eitthvað áður en þær birtast á netinu :o  Ef einhverjir fleiri eiga myndir þá endilega hafið sambandi svo hægt sé að setja þær inn líka, um að gera að hafa sem mest af þessu svo að þeir sem ekki komust sjái hverju þeir misstu af.

Það liggur við að mann langi að halda svona mót árlega hér eftir, þetta var svo hrikalega gaman, við verðum sko að vera dugleg að hittast því þessi árgangur er bara SNILLD.

Við Andrea erum að vinna í nýrri síðu fyrir okkur, hún er ekki nógu ánægð með þessa og maður þorir ekki öðru en að hlýða henni 8| Við ætlum nefnilega að halda áfram með svona árgangssíðu og setja inn myndir og fréttir, um að gera fyrir ALLA að taka þátt. Þið verðið að vera dugleg að taka þátt hérna.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4